Norbert Haug, íþróttastjóri Mercedes-Benz, sagði að sigur Mika Häkkinens í ungversku Formúlunni væri einn sá glæsilegasti á ferli hans.
“Mika ók frábærlega. Sigur hans hefur kannski virst auðveldur en mín skoðun er sú að þetta hafi verið afrek að ná þessum frábæra árangri. Þetta var besti kappakstur sem Mika hefur ekið” sagði Haug.