Schumacher sagði að dóttir sín, Gina-Maria, hefði hjálpað sér að yfirstíga áfallið við það að falla úr keppninni í Hockenheim.
„Þegar ég kom heim leit Gina áhyggjufull á mig og sagði: Pabbi þú endaðir aftur í mölinni“ sagði Schumacher og bætti við: „Það var ekki hægt annað en að hlæja og alltí einu voru áhyggjurnar orðnar miklu minni”.