Það er ekkert sem mælir á móti því að byrja strax! Þú getur fengið einflugsskírteini (sóló próf) 16 ára þannig að það er ekki eftir neinu að bíða!
Ef þú ert ekki nú þegar búin að fara í kynnisflug, þá er rétt að byrja á því. Farðu í kynnisflug hjá sem flestum flugskólum, og veldu síðan þann sem þér lýst best á. Af fyrri reynslu veit ég að sum svörins sem þú færð um val á flugskóla hér á Huga ganga út á að einn skóli sé betri en annar. Þetta þarf ekkert nauðsynlega að vera rétt. Veldu þann flugskóla þar sem þér líður vel.