Ég er bjartsýnn. Held að botninum sé náð svona nokkurn veginn og flugið sem og annað muni sigla upp á við úr þessu. Sennilega sniðugt að læra flugið núna um þessar mundir og vera tilbúin(n) þegar nær dregur topp uppsveiflunnar. Hins vegar held ég að eðli flugfélaganna sé að breytast, það sé eitthvað sem gerist með góðu eða illu því kröfur markaðarins eru breyttar og markaðurinn sættir sig ekki við annað en það sem fullnægir þörfum hans og hámarkar hamingjuna.