Halló. Ég veit ekki hvort þetta sé rusl eða ekki…Ég ýtti óvart á “Ég ætla” kubbinn án þess að lesa afhverju ég átti að ýta þarna og svoleiðis þannig að ég ætla bara að standa við mitt…

Ég á tvo bræður og þegar þeir voru litlir þá áttu þeir gullfiska í svona litli skál. Þeir voru að hugsa vel um þá eins og á að gera með gullfiska og þannig dóterí. Það er þannig að pabbi minn er oft að grínast í okkur og er oft með sömu brandarana aftur og aftur… Já en annars…Bræður mínir komu heim úr skólanum og þá var pabbi inní eldhúsinu. Hann var að skera gullrætur og datt í hug að vera rosalega finndinn… Hann skar gullrót í lagið eins og einn af gullfiskonum og lét hana ofaní skálinu og tók annan fiskinn út. Strákarnir komu inn í herbergið þar sem gullfiskarnir voru geimdir og þar stóð pabbi og tók gulrótina uppúr og át hana með bestu list. Strákarnir stóðu bara þarna starandi og allveg í sjokki, strax á eftir sagði pabbi hvað þetta hefði verið og bræðurnir önduðu léttar…

Jæja þá er “Greinin” mín búin…

Takk fyrir mig
P,s ég var ekki til þegar þetta gerðist en pabbi minn sagði mér þetta og ég skrifaði þetta eins og ég mundi.