Sælir, er búinn að henda inn “Aðsent efni” kubb, sá kubbur mun verða notaður til þess að skrifa sína eigin dagbók úr FF leikjum.

Sem dæmi:
Segjum sem svo að ég séi að spila FF7, frá byrjun þá byrja ég minn þráð, og segi frá því sem gerist.
T.d: “… Og lenti harkalega á þaki kirkjunnar, þar sem ung og falleg stúlka hugsaði vel um mig…”

Segja frá leiknum einsog þú sért að upplifa þetta allt. Ekki þarf að skrifa allt í einu, þið megið skrifa eins mikið og þið viljið en bara vonandi að þið skrifið leikinn til enda. :)

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt sendið mér skilaboð og ég mun bæta ykkur á listann.

VARÚÐ: Þessir þræðir munu innihalda spoilera, ekki þarf að gera neina viðvörum um það.
Beer, I Love You.