Ég er í smá vandræðum með að finna nýjar bækur.. Ég downloada alltaf hljóðbókum (á ensku) til að hlusta á í vinnunni og ég á í einhverjum erfiðleikum með að finna nýjar bækur því ég er með svo einhæfan bóka smekk..
Svo ég var að vonast til að fá einhverjar uppástungur frá ykkur, en til að sína ykkur hvar áhugi minn lyggur þá kemur hérna smá listi (í engri sérstakri röð) yfir bækur sem ég hef verið að hlusta á.


The inheritance cycle
Harry Potter
Twilight saga
Artemis fowl
Southern vampire mysteries (Sookie) - sería
The Hollows - sería
Nightside - sería
House of night - sería
Ranger's apprentice - sería
Demon Cycle - sería
Vampire academy - sería
The Saga of Darren Shan - sería
His dark materials
The Mercedes Thompson series
The Bartimaeus trilogy

og margt margt fleirra sem ég man ekki eftir… En ef þið hafið lesið einhvað af þessum bókum/seríum og dettur einhvað í hug sem er í svipuðum dúr þá endilega láta mig vita… Það má ekki vera of þunkt efni eda mjög heimspekilegt (því ég hlusta á þetta í vinnunni) helst bara einhvað skemmtilegt og spennandi sem maður getur gleimt sér í..

Ég væri agalega þakklát ef þið nennið að taka smá tíma í að hugsa málið og láta mig vita :)



P.S. Ég veit að ég er léleg í stafsetningu, so don´t bother pointing it out..