Ef einhver hefur lesið þessar safn bækur þá væri ég endilega til að heyra þeirra álit á þeim.

Mér persónulega fannst Shannara safnið æðislegt, góður söguþráður sem spannar yfir marga ættliði 1 ættar. Er á síðustu bókinni en er of hræddur um að klára hana, er að spá í því að lesa hana á dánarbeðinu þannig að ég get dáið glaður, nema náttla ef hún endar leiðinlega þá veit ég ekki hvað á að gera.

Noble dead safn örlítið nýlegra en dýptin og ástríðan í þessum bókum er svo mikil að maður slefar eftir að getað lesið næstu bækur. Þetta safn heillaði mig samt örlítið meira en Shannara.