Í framhaldi af mikill og hefðbundinni umræðu um svindlásakanir,teamplay (skort á slíku) og leiðindaseggi á ff serverum vil ég koma með þessa tilkynningu:

Farinn er í loftið nýr public server og það er allt okkur í -=LALD=- að kenna. Þetta er bara svona standard server þar sem allir mega koma að spila ef þeir fara eftir nokkrum reglum.

Í fyrsta lagi munum við ekki líða neinn kjafthátt og móral. stfu n00b = kick. og ef menn mæta aftur með kjaftinn þá er það umsvifalaust bann.
Tekið verður á mönnum með svindlásakanir á sama hátt.

Serverinn er með friendly fire og eð menn eru staðnir að því að drepa liðsfélaga viljandi þýðir það kick+bann, aleg sama þó að séu bara 10 sec eftir af mappinu. Ekki er refsað fyrir dráp á liðsfélaga (tkpunish,autokick), það er nóg að missa mann úr liðinu.

wonId hjá svindlurum verður bannað forever

Við viljum ýta undir það að spilað sé teamplay á servernum og biðjum því þá sem vilja bara fraghunta að snúa sér til simnet servera. Einnig fá þeir sem eru með leiðindaspilun s.s. basecamp með bombu að fjúka ef þeir bæta ekki ráð sitt.

Mapcycle á servernum er algjölega byggður upp á sprengjuborðum, öllum þessu klassísku og líka minna spiluðum þ.á.m. de_clan1_mill, de_clan2_fire, og de_storm. Okkur fannst vanta meiri spilun á þessum borðum á public.

Eins og gefur að skilja þá geta server adminar ekki verið þarna öllum stundum til að framfylgja þessu en við munum reyna okkar besta.
Eins og er keyrum við serverinn á win2k og hann er 16 manna. þar af leiðir að þegar hann er fullur er slatta lagg í gangi. Við ætlum að breyta honum í linux server við fyrsta tækifæri með ping booster og öllu tilheyrandi.

Við þetta er að bæta að við erum ekki að reyna að kenna einum eða neinum að spila cs “rétt”, bara að koma með leiðbeinandi upplýsingar um hvernig við viljum að spilun sé háttað á okkar server. Einnig að þetta er líka skrimm/æfingaserver okkar og við biðjum spilara að sýna því skilning ef þeir eru beðnir um að víkja af servernum þegar skrimm/æfing fer fram.

ip á servernum er 213.220.91.125:27015

Með vinsemd og virðingu
-=LALD=-|Saxon^
“Only the good die young, and I seem to be getting pretty old”