Allt í lagi, mig langar að vita hvort að einn sérstakur draumur sem að mig dreymdi þýddi eitthvað ^-^?

Ég man ekki vel eftir hann en skrifa allt sem að ég man:
Ég var stödd á svona ‘‘campus‘‘ nema hvað að þetta var ekki fyrir menntaskóla eða háskóla eða eitthvað þannig, náði því reyndar ekki um hvað þessi campus var en allavegana. . .

Ég var komin inní eitthvað systrafélag þarna og það sat stór vinahópur þar með bæði stelpum og strákum og ég og vinkona mín vorum þarna og settumst bara hjá þeim. Og gellan sem leikur Edie í Desperate Housewives var líka þarna (haha spes ég veit). Svo fara allt í einu allir farnir nema ég, vinkona mín og þanra ‘Edie‘. Allt í einu tekur Edie um hausinn minn og kyssir mig á munninn o.O Og ég vil taka það fram að ég er gagnkynheigð haha.

Allavegana svo líður tíminn og e‘ð gerist sem að ég man ekki alveg. En áður en ég veit af þá er ég stödd í partíi í Borgarnesi í mjög fancy húsi. Þar er stelpa sem að ég þekki ekki neitt sem var búin að taka til sín 2 gaura og þeir áttu að vera fyrir mig og vinkona mína þar sem að við vorum báðar á lausu og vorum búnar að vera það í nokkurn tíma sko. Annar gaurinn var lítill svolítið hnakkalegur & vinalegur samt með svona uu araba-klút um hálsinn í hvítri peysu og gallabuxum og var fyrir vinkonu mína. Hinn var í svarti peysu, aðeins stærri en ég og með svart hár sem stóð útí loftið (man ekki hvernig buxurnar voru haha sorry :]) en freeeeeeeekar grumpy.

Svo sest ég þanra niður með honum og gellan sem reddaði þessum gaurum fyrir okkur (gellan var víst á föstu samt) og gaurinn byrjar að rífa sig við hana og kvarta yfir einhverju og blablabla og hún er eitthvað að rökræða við hann og segja honum að vera góður og hætta að rífast. Svo á meðan þá sit ég þarna og glápi bara útí loftið og sé að vinkona mín og hinn gaurinn sem að hún fékk voru í DJÚPUM samræðum og virtist allt ganga vel. Allt í einu kemur svo fullt af fólki og sest hjá okkur og gaurinn ennþá að væla. Svo þá stóð ég bara upp og labbaði bara í burti eitthvert annað.

Þá hitti ég aðra vinkonu mína þarna og við byrjum að labba um og svona. Svo förum við inní einhvað herbergi sem var bjart með rúmi uppvið vegg. Þar liggja fullt af fólki og er að horfa á MYND. Þá leggst ég og vinkona mín í rúmið og eiginlega um leið og ég leggst uppí rúm leggst einhver gaur oná mig og segist heita Chuck o.O Mér bregður frekar mikið en kynni mig líka, svo vaknaði ég bara.

En um daginn eftir að mig dreymdi þennan draum leið mér bara helvíti vel ^-^ og sérstaklega útaf partinum með chuck haha. En er einhver sem veit hvað þessi draumur táknar . . EF ÞETTA TÁKNAR EITTHVAÐ -.- Frekar skringileg tilfinnining sem að ég hef verið með síðan mig dreymdi þennan draum oO



Bætt við 11. janúar 2009 - 23:00
Ekki misskilja þetta þegar ég nefni : Sérstakleg útaf partinum með chuck haha.
Veit að hann LAGÐIST UPPÁ MIG í DRAUMNUM.
Þetta var ekkert dirty samt o.O
já.