Hver er fyrsti draumurinn ykkar sem þið munið eftir??

Fyrsti draumurinn sem ég man eftir hljóma svo:

1. Ég dreymdi að Mikki mús, Mína mús, Guffi, Andrés önd, Andresína og plútó væru að fara í ferðalag. Þau ætluðu að gista í stóru óhugnalegu svörtu húsi út í skógi. Þau fóru í stáss-stofuna og voru eitthvað að tala saman.
Allt í einu koma dauðar mýs svífandi inn um veggin með feldinn útan af sér í kjaftinum.
Mikki mús og félagar flýja í ofboði út úr húsinu og einn í skóg. Þau fela sig í helli, mýsnar koma á eftir þeim og koma í gegnum klettavegginn og láta skinnin af sér við lappirnar á þeim og svífa svo bara burt.-ég vakna.