Ég hef verið að lenda frekar oft í því nýlega að fá mjög skrítna drauma.
Þessir draumar lýsa sér þannig að um leið og ég loka augunum þá sé ég fyrir mér strák að skera í andlitið á sér. Ekki nóg með að ég sjái þennan strák heldur sé ég fullt af fólki, sem dæmi má nefna sé ég gamla konu sem situr fyrir framan mig og byrjar að opna munnin þvílíkt mikið og stingur tungunni út í átt að mér. Svo sé ég allskonar fólk með nokkuð afmynduð andlit eins og eitthver galli sé í andlitunum og þetta fólk starir á mig.
Svo er það líka það að ég sé æ oftar þessa litlu fölu stelpu sem er að hvísla eitthverju að mér og ég næ aldrei hverju hún segir.

Þessir draumar eru ekki eins og venjulegir draumar, tildæmis hrökk ég við upp úr svefni um daginn þegar að ein manneskjan greip í mig. Það versta var að þegar að ég vaknaði fann ég stingí öxlunum þar sem að hún greip í mig.
Þetta er bara allt of raunverulegt til að vera venjulegur draumur. Ég eiginlega get valla útskýrt afhverju þetta getur ekki verið venjulegur draumur.

Ég veit ekki hvort að það sé hægt að skilja mikið í því sem að ég var að skrifa en ég er farinn að verða svolítið hræddur við þetta. Þetta er farið að koma æ oftar og ég er að spá í hvort að ég sé bara að verða geðbilaður eða hvað. Ég vissi ekki hvort að ég ætti að gera eitthvað í þessu eða ekki þannig að ég ætla að byrja með að koma með þetta hingað og athuga hvað aðrir segja um þetta.
[89th]GEN. storkur