Okey þetta var þannig að ég lá uppi í sófa og var með hálf lokuð augun. Þegar ég er alveg að fara að loka augunum sé ég eins og einhvað skjótast framhjá og ég fraus bara bókstaflega, og síðan var eins og einhvað byrjaði að hringsólast inni í eyranu á mér ég gat ekki hreyft mig, ég gat ekki öskrað bara ekki neitt, þurfti bara að bíða eftir að þetta liði hjá (tek fram að þetta gerðist um svona 2 leitið um nóttina). Allt í lagi ég er svoldið sjokkeraður vissi ekkert hvað var að ske. Síðan þegar ég var alveg að sofna aftur þá byrjar þetta aftur, en í þetta skipti sá ég ekkert skjótast framhjá, heldur bara byrjaði þetta, og þetta er búið að gerast svona inná milli, eru þetta einhverjir illir andar eða er ég geðveikur?

Og vonandi fæ ég svör

Kv. Gogoglagsen