HMM er verið að ráða drauma hér. Þá getið þið kannski sagt mér hvað draumurinn minn þýddi. Ég var einhversstaðar út á götu og þar var maður að fara yfir lottóið mitt og hann var fyrir aftan vélina og tók á móti miðanum eins og vélin væri biluð og svo opnaði hann og ég vr með 4 rétta og ég var rosa kátur en síðan gekk ég burt í gleði minni án þess að taka við vinningnum en svo hitti maðurinn einhverja frænku mína og sagði henni frá vinningnum og hún ætlaði að taka við honum og láta manninn hennar fá hann til einhvers sem ég man ekki hvað var og svo gekk hún bara í burtu.
Síðan er ég var að ganga heim á leið eftir að hafa unnið byrjaði ég að ganga til baka til baka til að ná í vinningin og maðurinn ákveður að ganga til mín og láta mig fá vinningin því að hann vildi ekki láta hana fá hann enda átti ég hann og svo vorum við að ganga í áttina að hvorum öðrum og svo man ég ekki söguna meir.

Ætli þetta þýði eitthvað eða er þetta bara eitthvað rugl.