Þegar ég var lítill var ég alltaf að sjá “drauga” eða hvað sem þið viljið kalla þetta. Síðan þegar ég var sona 11 hætti þetta og ég var frekar feginn þar sem það var frekar óþægilegt að vera einn heima að sjá og heyra í “draugunum” en sumarið eftir 8 bekk fór ég að vinna í sveit og húsið sem er notað sem verkstæði er elsta sona almennilega fjós á landinu. Amma mín og afi eiga þetta þannig að maður hafði oft farið þarna inn en aldrei seint á kvöldin og snemma á morgnanna. Það hefur oft verið talað um draugagang í þessu húsi og þá er ég að tala um marga sem trúðu ekki á drauga áður en þeir lentu í draugnum þarna. Í hvert skipti sem ég labba þarna inn finn ég svona tilfinningu hroll upp bakið, eins og það sé einhver þarna hjá mér eða að fylgjast ameð mér. Svo gerðist það eitt kvöldið að ég var að hjálpa frænda mínum að gera við bílinn sinn, það var rigning og rok úti, komið fram í miðjan ágúst og orðið dimmt á kvöldin. Við bogruðum báðir yfir húddið og vorum eitthvað að skrúfa þegar við heyrðum eins og það væri labbað ofaná þakinu (það var rigning úti þannig að þetta hljómaði sona þyngra og hægara) . Við héldum að þetta væri einhver vinur frænda míns, afi eða einhver að stríða okkur og þegar þetta hætti fórum út kíktum hvort við sæjum einhvern bíl eða eitthvað annað. Þetta var sona um 21:30 oo so hélt þetta áfram með sona 10-15 mín. millibili út kvöldið. En það sona mest “spúkí” í sambandi við þetta er þegar ég var þarna einn um kvöld að gera við vélsleðann minn og var orðinn frekar þreyttur að ég fór inní íbúðina sem er þarna sem við notum sem kaffistofu. Ég sat þar og var að horfa á sjónvarpið þegar ég heyri að það er skrúfað frá vasknum frammi og ég náttúrulega labba fram og byrja að kalla og fæ ekkert svar. Ég kíki í vaskinn af því að hann er soldið dældaður eftir allt járndótið sem hefur dottið ofan í hann og voru dældirnar fullar af vatni og ég labba aftur inní íbúð og ætla bara að bíða þar eftir því að sá sem hefði komið kæmi þangað. Ég er búinn að sitja þar í sona 10 mín þegar hurðinni er rikt upp og skellt geðveikt harkalega aftur. Ég varð svo hræddur að ég hljóp út og hringdi úr gemsanum mínum og lét sækja mig!!