Þetta er ekki beint dulspekisefni heldur bara pæling. Það skeður oft fyrir mig að þegar ég vakna við klukkuna og er að dreyma þá vil ég fá að klára drauminn og mæta bara seint í vinnuna, það skeði t.d. í morgun að ég bara varð að vita hvað skeði næst. Gerist þetta fyrir ykkur líka? Sko að þið fórnið almennri skynsemi fyrir drauma.