Það er eins og eitthvað gerist í húsinu mínu þegar ég kem heim úr skólanum ég heyri þvílíkt mikinn umgang gardínur eru dregnar upp alltaf þegar ég kem heim amt er enginn heima.
Í dag þá kom ég heim úr skólanum og það var eins og eitthvað dynk heyrðist mér dauðbrá hljóp upp og sá fullt glas af kóki frá því í gærkvöldi niðri á gólfi.

Ég fór í PC og kíkti á huga síðan datt gler af loftljósi niður á gólfið og mölvaðist.
Mér DAUÐbrá og sópaði þetta saman og henti í ruslið en samt var þetta efsti í huga mér og er ennþá. Er þetta eitthvað náttúrulegt eða ónáttúrulegt? þetta gerist á svona öðrum hverjum degi hef EKKERT vit á þessu enda ekki svo gamall. en vitið þið um ráð sem ég get gert til þess að láta þetta hætta?