málið er að ég á mjög ofverndaða foreldra og af þeim ástæðum er ég oftast félagskúkurinn sem mætir á 1-2 böll á ári max. og núna eru vinir mínir að fara að halda partí. málið er að það byrjar ekki fyrr en rétt um miðnætti og það er ekki séns að foreldrar mínir leifi mér að fara. og ef þau leifa mér að fara þá er ekki séns að ég geti verið lengur er klukkutíma og ég get ekki drukkið neitt því að þau eiga eftir að sitja fyrir framann sjónvarpið bíðandi eftir mér. ég get ekki farið án þess að þau leyfi mér og ef ég fer ekki þá er bókað að það verður hringt í mig, eða í versta falli að vinir mínir komi og nái í mig blindfullir.

er einhver leið að ég geti komist í þetta partí eða sleppt því að fara án þess að ég lendi í vandræðum hjá foreldrum mínum eða vinahópnum.