Ég var að horfa á myndina Loose Change um daginn. Þetta er mynd þar sem þeir sem gerðu hana halda því fram að 9/11 hafi verið planað af ríkisstjórninni(eða eitthvað svoleiðis)… Ég trúði þessu svo feitt um leið og ég var búinn að horfa á myndina! Ég sannfærðist gjörsamlega. Þeir komu með svo margar staðreyndir sem sýndu fram á að turnarnir hefðu verið sprengdir niður og að það hafði ekki farið Boeing 747 vél á Penthagon omfl…
Svo fór ég að tala um þetta við stjúppabba minn og hann bara hló að mér og sagði mér að þetta væri bara klikkað lið sem gerði þessar myndir.. (kannski ekki alveg.. en só..)

Hvet ykkur til að kíkja á myndina hér