Nú hefur notandi með nafnið HjaltiG sent mér hótun þess efnis að hann ætli að myrða mig og svipta mig því lífi mínu. Hótun þessi kemur vegna þess að aðilinn sem sendi hana er á móti samkynhneigðum og hann veit að ég er samkynhneigður og því hótaði hann mér.

Brot þessara aðila er tvöfalt. Hann hefur notað samkynhneigð mína til þess að hóta mér og segja að ég sé verri út af því en það flokkast sem hatursglæpur. Þessi aðili hefur líka hótað mér morði en hótanir eru bannaðar með Íslenskum lögum.

Ég hef hugsað um að tala við ritstjóra huga um að láta banna notendann héðan en nú virðist hann vera hættur að hlusta á mig og því get ég ekki gert það.

Ég hef haft samband við lögreglu vegna rasisma og annara níðyrða sem ég hef verið kallaður hér á huga en lögreglan virðist ekkert vilja gera heldur í málinu.

Nú getur þessi notandi kannski komist að því hver ég er ef hann þekkir einhverja á huga og líklega er honum ekki alvara en hvað ef honum er alvara og hann ætlar að drepa mig í alvöru? Mér líður illa yfir að hafa fengið svona sent til mín og ég er alveg ráðalaus.

Hvað finnst ykkur að ég ætti að gera í þessu máli?

Skeytið sem hann sendi mér er hér fyrir neðan.

“FAG!!! - 20. apríl - 19:29


Þú ert hommi og ég hata þig
ég drep þig einhvertíman ég lofa þér því


Frá: HjaltiG - Svara - Eyða”