Hverjir hafa séð nýju auglýsingarnar frá Samtökum Iðnaðarins?

Ég veit ekki hvar þeir lærðu hagfræði, en þeir vilja meina að árlega séu 40 milljarðar sem skili sér ekki til samfélagsins vegna svartrar vinnu?

Hvað í ósköpunum meina þeir? Eru þeir að halda því fram að fólk sem stundar svarta vinnu brenni peninga?

Nei, það sem þeir eru að meina er að þeir sjálfir fá ekki að sjá krónu af þessum peningum, og ríkið ekki heldur.
Hins vegar hverfa þessir 40 milljarðar ekki úr samfélaginu (hagkerfinu). Þeir koma að góðum notum hjá þeim einstaklingum sem eru að kaupa og selja svarta vinnu.

Enn og aftur reyna sérhagsmunahópar að láta sitt eigið tap líta út fyrir að vera tap heildarinnar, þegar svo er alls ekki
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig