Mér finnst gott að fá mér sígarettu eftir stressaðann dag. Það er ekkert sem sefar reiði, stress og þreytu eins og sígaretturnar gera. Til eru margar tegundir af sígarettum, þær hafa mismunandi tjöru og nikótín magn, hver og einn verður að finna hvaða styrkleiki hentar. Einnig eru til Menthol sígarettur sem sumir kjósa yfir venjulegu sígaretturnar. Vinsælustu sígarettutegundirnar eru Winston, Marlboro og Camel. Ódýrustu sígaretturnar eru Royale og Gold Coast.


Hér hef ég framið lögbrot herrar mínir og frúr, ég hef sagt´tjáð mig um sígarettur án þess að hafa það að aðal umræðuefni hve skaðlegar þær eru. Ég vona að ég verði tekinn fastur og leiddur fyrir rétt, þá gætum við fengið að sjá hvort þessi nýju lög standast stjórnarskránna.<br><br>Króni Kapítalisti
kroni@softhome.net