Jæja, það ætti svosem engum að koma á óvart að Drottinn kunni að skemmta sér í afmælispartíum. Í gær gerði semsagt Guðurinn, eða omegan og alfan eins og hann er stundum kallaður, sér lítið fyrir og tók einn nettan jarðskjálfta á jólastemmninguna. Til að hafa smá ‘alternative’ fíling í gangi ákvað Hann þó að hafa skjálftann neðansjávar til að breyta jólagleðskapnum í eitt æðisgengið brimbretta extravaganza, shock&awe style. Til að skjóta stúlkunum í nylon ref fyrir rass dobblaði Hann jafnvel nýja lagið þeirra 5 á richter, þrusaði einum 9 á richter á vinsældalista nokkurra landa við Indlandshaf.

Enn eru sölutölurnar nokkuð á reiki, en það má ljóst vera að Platínuplata ötuð blóði drukknaðra mun innan tíðar verða afhent Skapara himins og jarðar af samtökum alþjóðlegra hjálparstofnanna. Fréttamönnum úr skemmtanaiðnaðinum ber ekki saman um markmið þessa nýjasta útspils Guðs, en gagnrýnendur hafa stungið upp á að með þessu vilji Faðirinn gera góðlátlegt blautt grín að árlegri tónlistarhátíð Sonarins, betur þekktur sem Jesú frá Nasaret (ekki þungarokkshljómsveitin).

Hvað sem því líður er nokkuð ljóst að tímasetningin kemur sér illa fyrir “krónprins kristninnar” og er hætt við að hann kunni að falla um nokkur sæti í vinsældum um þessi og næstu jól. Amk er erfitt að taka mikið mark á sugary-sweet fagnaðarerindum hans eftir jafn ósmekklegan skandal af hendi umboðsmanns Frelsarans.