Jæja, alltaf jafn áhugavert að skoða linkanna hérna á huga, sérstaklega þann sem maður getur lesið um World National Socialism(Athyglisverðar Greinar/fréttir). Ekki veit ég hver setti þetta inn en rosalega finnst mér sorglegt að lesa af þessari síðu. Þarna er verið að ýta gróflega undir kynþáttahatur.

Gyðingahatur lifir einnig góðu lífi þarna og fær maður það á tilfinninguna að þarna sé fólk á ferð sem sé með mikla vanmáttarkennd.

Allt þetta og meira til á Hugi.is. Víst að tenglar í svona síður eru leyfðar, eigum við ekki að ganga alla leið og setja meira af þessu drasli inn?