Sæl öll sömum.

Ég var að vellta fyrir mér hvernig væri dæmt á Íslandi því að ég er búinn að sjá marga skrítna dóma.

TEKIÐ skal fram að ef einhver mistök koma fram síðar í greininni biðst ég velvirðingar fyrir þau, allt hérna er satt svo framarlega sem mínar hemildir(mogginn, fólk úti á götu…) segja.

Dómur 1.
Það var þekktur barnaperri í Hafnarfyrði(eða Keflavík, er of þreyttur til að muna, gildir einu) og var þessi maður búin að búa þar til langs tíma. Fólk vissi hver þetta var en gat ekkert gert því annað hvort var ekkert hægt að sanna fyrir vissu til að stinga honum lengi inn eða hann búinn að afplána þá litlu dóma sem hann fékk.
Eitt fórnarlambið, 16 drengur var búinn að fá nóg. Sá hinn sami var áreyttur , ekki líkamlega heldur munnlega hvert sinn sem hann sá þennan mann, fyrir utan að maðurinn var búinn að afplána dóm fyrir afbrot gegn drengnum. En hann lét hann ekki vera. Drengurinn tekur haglabyssu og fer að ógna mnninum og segir honum að láta sig vera.
Nú hleypur skot af, óvart eða ekki veit enginn. Drengurinn segir óvart en hver veit. Allavega fara högl í mannin sem deyr. Nota bene ekki beint af skotunum, heldur af sjokki.Hann fékk nefnilega hjartaáfall.

Þessi drengur fékk 10 ár þar af 4 á skilorði minnir mig…TÍU ÁR. Pælið í því!

Dómur 2.
Drengur skýtur föður sinn í hausinn með skotvopni en segist hafi verið að fremja sjálfsmorð en ekki hitt. Í offáti hlaupa 2 önnur skot af í pabbann.(afsakið ef ekki er alveg rétt farið með staðreyndir, megin atriðin eru þau sömu).
Hér er drengur sem “óvart” skaut pabban í hausinn og drap hann.
Hann fékk minna en 2 ár og mikið skilorðsbundið. MINNA EN 2 ÁR. Pæliðí því!

Dómur 3…Eða málsatvik 3.
Drengur vaknar af áfengisdauða í tjaldi sínu á útihátíð við það að einhver gutti er að nauðga honum. Nú far staðreyndir soldið á flakk. Annað hvort stingur hann guttann með næsta áhald sem hann fann(með á nauðguninni stóð yfir, eða hann ellti guttan uppi og stakk hann, skiptir ekki öllu).
Báðir kæra en nauðgunarkæran felld niður en ekki stungan…Sökum einhverra fáránlegra raka, tilfinnigalegs tjóns stungufórnarlambsins. Pælið í því stelpur. Ekki stinga nauðgarann, þá eruð þið kærðar. Tek fram að mér þykir líklegra að drengurinn hafi ellt uppi guttann og stungið hann, en skiptir ekki máli.

Dómur 4.
Stelpa á Akureyri stelur frá hagkaup. Þegar hún er kærð, viðurkennir hún allt og segist hafa verið að borga neyslu(persónulega finnst mér það eingin afsökum, bara að sýna samvinnuvilja stelpunar). Hagkaup segir 6 milljónir hafa horfið á einu ári, en hún vill meina að það sé mikið minna. Dómurinn var 14 mánuðir ef minnið virkar, þar af 11 á skilorði.
Árni Johnsen stelur frá þjóðinni en vill ekki viðrkenna það. Hann er einungis rannsakaður og við bíðum en…Gott að eiga háttsetta vini :)

Jæja þá er rausið búið, tek aftur fram að hér kunna að vera einhver mistök í gangi…Klukkan er nú 03:20 um nóttina.Skiptir eingu, megin atriðin eiga að standa dagsins ljós.

Endilega segið mér frá fleiri málum eða bendið á mistök.

hvað fékk annar nauðgarinn sem skar fórnarlambið með ostaskerea og flúði land í 3 ár? … Fékk hann ekki 3 ár…Pælið í því! Gott líf að vera nauðgar\mannníðingur\lögbrjótur eldri en 20\Árni Johnsen(smá húmor) :).

Góða nótt!