Ég er búinn að vafra solldið um netið og síðan rekst ég á síðu þar sem íslenskir þjóðernissinnar eru að tala um hvað Ísland sé að verða “mengað” af útlendingum og aðrir fávitar útí löndum styðja það. Hérna er smá texti hafður eftir útlenskum þjóðernissinna:

“Why is everyone JUST SITTING ON THEIR A$$E$!? Why can't we do anything about this? Do we really want to lose the last all white country on earth? Do we want them poisoning the blood of white women who's white blood line has been preserved for so long? Do not make the same mistake America and Europe has. All will be lost if we lose Iceland to them I can assure you.”

Hvað er í gangi. Fengu þessir (öfga)þjóðernissinnar/nasistar ekki nógu mikið að finna fyrir því í lok 1945.

Ég segi nú bara:

“Why is everyone just sitting on their asses? Why can't we do anything about this. Do we really want to lose the last country into hands of nationalists? Do we want them spreading out the stupitidy what they bealive in, wich is soooo wrong and has been for sooooo long? Do not make the same mistake as America and Europe has. All will be lost if we lose Iceland to them I can assure you”

Þið skiljið mig og ég veit að allir Íslendingar eru þjóðernissinnaðir. Ég er stoltur af landinu mínu og stoltur af þjóðinni minni en FYRR MÁ NÚ HELVÍTIS FYRR VERA!!!!!!!!

Ég rakst á frétt á þessari sömu síðu sem segir frá hvítum manni sem svartur maður réðst á og reyndi að ræna, skaut hann í fótinn og handlegginn því hvíti maðurinn vildi ekki rétta honum símann sinn.

Svo svarar einn þeirra:

“Amazing how they don't mention that the attacker is black, isn't it? Yet if the situation were reversed, it would be all over the papers.”

Já, ef árasarmaðurinn hefði verið hvítur væri það í öllum blöðum og ástæðan fyrir því, litað fólk, einkum svart, hefur verið ofsótt í gegnum tíðina af hvítu fólki.

Hvernig? Til dæmis:

Þrír bókstafir; KKK

Á stormfront.org er barnasíða, Æ, en sætt. Þar er drengur, 14 ára sem segir m.a.:

"Hvítu fólki er kennt í skóla að skammast sín fyrir arfleifð sína. Kennararnir reyna að troða eins mikið af [réttum pólitískum hugmyndum, "politically correct ideas"] inn í höfuð þitt á einu skólaári. Öll hin miklu afrek hvítra manna (hvort sem það er ríki Hitlers eða whatever) í mannkynssögunni eru niðurlægð og gert lítið úr þeim. Þannig að, nú held ég að tími sé kominn til að allir hinir hvítu umhverfis hnöttinn, sameinist og rísi ofar lygunum og verði stolt af því hver við erum. Tökum til baka frelsið og sigur okkar fyrir alla og sjáum og okkar arfleifð í allri sinni dýrð.

Að lokum vil ég benda á heimasíðu, sem er held ég ekki til lengur. “Arísk upprisa” er fyrirsögn sem tekur á móti þér á síðunni og meðfylgjandi hakakross undir. Ef þú ert ekki kynþáttahatari áttiru greinilega að fara burt. Tveir linkar voru í upphafi, annar sem hét “Hvað er hatur” og átti það að afsanna hatur á náunganum, afsanna kynþáttahatur. Setningar sem enduðu allar á “Er það hatur”. Síðan var það hinn linkurinn sem leiddi inn á allskonar greinar s.s. það að afsanna helförina og önnur eins vitleysa. Aðalhugmyndasmiður þessara einfeldinga er dæmdur morðingi og glæpamaður David Lane. Hann er einn frægasti kynþáttahatari seinni tíma. Hann var barinn í æsku, mátti þola hart uppeldi og það skýrir kannski þetta sem fer á eftir.
Hann stofnaði ein mestu rasistasamtök seinni tíma, The Order sem staðið hafa fyrir fjöldamorðum, hatursglæpum og ofsóknum. Hann hefur skrifað fjöldann allan af bókum, skrifað greinar í blöð, ritgerðir uppfullt af kynþáttahatri. Hann hefur tekið að sér ásatrúna, afbakað hana að sínum eigin nasisma og túlkað Hávamál með eigin nasista túlkun. Sannkallaður viðbjóður og úrþvætti (fyrirgefið harðmæli mín)!

Þessir þjóðernissinnar segja að þeir verði að rísa upp aftur vegna niðurlægingar á hvíta kynstofninum. Hvíti kynstofninn HEFUR ALLTAF og ER í meirihluta í heiminum þannig að ég skil ekki hvað þeir eru að væla.

Ég veit að þetta er viðkvæmt umræðuefni og kannski fór ég á undan mér við skrif þessarar greinar, kannski er ég að skrifa einhverja vitleysu (vonandi ekki) en ég vil bara fá skoðun fólks um þetta efni, endilega tjáið ykkur, kynþáttahatarar jafnt sem jafnaðarmenn!

-Steypukall-

www.stormfront.org
http://www.stor mfront.org/archive/t-51091
http://www.adl.org/learn/Ex t_US/lane.asp?xpicked=2&item=lane

Núverandi URL inn á “Aríska Upprisu” er þetta:
http://members.odinsrage.com/islandiallt/
Ég kemst ekki inná síðuna en kannski þið? Prófið?