Ég sendi inn könnunina: Hefuru heyrt um Dj Tarkan og V-sag? Ég vissi að ekki voðalega margir hefðu heyrt um þá en ég vissi virkilega ekki að bara 6% af þeim sem hafa kosið hefðu heyrt um þá!
Þess vegna ákvað ég að skrifa grein um snúðana sem að slást um sætið sem uppáhalds plötusnúðurinn minn með Sasha, Axwell, Tommyboy og nokkrum í viðbót!

V-sag er 23 ára grikki og heitir í rauninni Vasilis Sagonas! Hann spilaði á píanó þegar hann var ungur og hlustaði á meðan alltaf á raftónlist. Hann byrjaði síðan að búa til lög með mjög flottum hljóðum og svo allt í einu var hann kominn inní plötusnúðar bransann!

Dj Tarkan er 33 ára tyrki sem að heitir í rauninni Tarkan Örs! Hann ólst upp í þýskalandi. Hann flutti svo til Instanbul þegar hann var 13 ára. Hann var líka alltaf að stússast eitthvað með raftónlist og þegar hann byrjaði að mixa á frægri tyrkneskri útvarpstöð byrjaði lífið hanns sem plötusnúður!

Fyrir bara einu ári síðan mynduðu Tarkan og V-sag Dj Tarkan & V-sag á No Smoking Recordings ( http://www.nosmokingrecordings.com ).
Þar spila þeir heimsins besta deep, tribal og progressive house tónlist að margra mati (að mínu mati allavegana)!

Ég heyrði fyrst í þeim á http://www.friskyradio.com þar sem að settin þeirra frá No Smoking Recordings eru oft spiluð!
Það var fyrst þegar ég heyrði eitt flottasta mix sem ég hef heyrt í allan þann tíma sem ég hef hlustað á tónlist, sem ég byrjaði að athuga þessa 2 aðeins nánar og þegar ég komst í samband við snúðana sjálfa og fékk nokkur af bestu mixunum þeirra sem að þeir urðu mjög stórir í mínum augum.
Mixið sem að ég heyrði og varð ástfanginn af heitir V-Sag & Dj Tarkan - Live @ Cacao Beach Bulgaria 09-08-2006 og þar spila þeir soldið Housí tónlist miðað við hvað er gera venjulegast! Ef einhver vill fá mixið eru örugglega hægt að fixa það einhvernveginn. Hafðu bara samband!

Þeir gera að sjálfsögðu líka tónlist á eigin hönd og til þess að fá meiri upplýsingar um það og jafnvel hlaða niður nokkrum mixum, getið þið einfaldlega farið inná http://www.djtarkan.com eða http://www.v-sag.com .
Hér er líka sérstakt V-sag forum þar sem er hægt að hlaða niður mixunum hans sem að mér finnst vera betri heldur en mixin hans Tarkan:
http://forum.v-sag.net/
Þú þarft bara að skrá þig og logga inn! Svo geturu gert það sem þú vilt!

Ég mæli virkilega með Tarkan og V-sag og No Smoking Recordings!