Party Zone, Bacardi og Rás 2 kynna:
Partý röðina “Dansa Meira”
-á Sirkus 10. september
DJ´s : Margeir og DJ Lazer

Geisladiskurinn “PZ: Dansa Meira ´05” dreift til gesta.


Dansþáttur þjóðarinnar, Party Zone, stendur fyrir röð af partýum sem þátturinn heldur í samvinnu við Bacardi í sumar. Ákvörðun var verið tekin að færa PZ kvöldin inn á minni staðina og búa til þétt og svöl partý á völdum danskaffihúsum hér á landi. Fyrsta partý-ið var haldið á Vegamótum laugardagskvöldið 11.júní. Algerlega frábært og fullorðins djamm það. Röð niður á laugarveg og öllu borð farin út af neðri hæðinni. Plötusnúðar kvöldsins stóðu sig mjög vel. Ekki verra partý var síðan á Cafe Amour á Akureyri í júlí.



Nú er komið að Sirkus og í þetta skiptið eru það Margeir og DJ Lazer sem hyggjast sjá um að trylla liðið. Sirkus smellpassar fyrir lítið og kúl partý enda staðurinn eitt stöðugt partý. Húsið opnar um 22 og stendur gleðin yfir fram til morguns. Markmiðið hjá öllum á staðnum verður að dansa meira. Fólki er bent á að mæta snemma og þyggja veitingar á vægu frá Bacardi, losna við röð og fá disk “Dansa Meira” kvöldanna í hendur.

Party Zone er á dagskrá Rásar 2 öll laugardagskvöld kl 19:30-22:00. Hann verður í fríi á laugardagskvöldið vegna beinnar útsendingar frá hróaskeldu.

Heimasíða þáttarins er www.pz.is



Nánar á:

www.pz.is

www.margeir.com