Fyrir sirka 2mánuðum þá stofnuðum við rás fyrir CoD2 spilara sem vilja safnast saman og keppa.. þetta hefur fengið frábærar móttökur, held að fólk hefur bara byrjað að spila meira og það er bara frábært.

En ég hef fengið nokkrar kvartanir sem tengjast aðalega vent, fólk sem mætir ekki á vent, fólk sem er á mp3 og aðalega fólk sem er með læti.

Við þurfum að taka á þessu, og ég vill minna fólk á það að þegar þið eruð að fíflast þá eruði að skemma leikinn fyrir hinum 9 spilurunum sem vilja einbeita sér og spila leikinn með fullum mettnaði.

Þannig vinsamlegast tökum okkur öll á og gerum samfélagið að betra samfélagi.

Fyrir hönd #CodPickup.is,
seven william