Hérmeð tilkynnist það þeim sem áhuga kunna að hafa að fyrirtækið DNRC hefur verið stofnað í EvE.

Mun þetta fyrirtæki taka að sér ýmis verkefni og lofar góðum niðurstöðum í hverju því máli sem það kýs að taka að sér.

Munum við taka inn í fyrirtækið hvern þann sem áunnið hefur sér virðingu okkar, óháð kynþætti, litarafti og trú. Þar með taldir útlendingar.

Þess má geta að DNRC hefur hafið stríð við RaiD Enterprises og hyggst þar hvergi gefa undan.

Takk fyrir,
CEO DNRC, DrPRoberts

Fjöldi meðlima við stofnun: 5

http://eve.klaki.net/dnrc/