Ég á í dálitlum vandræðum með fjórða borð í black and white. Það er allt vesenið með eldregnið. Ef ég hangi ekki yfir þorpinu til að reisa upp hlífðarskildi og grípa eldkúlurnar þurrka þær alltaf út þorpið, og þarafleiðandi hef ég aldrei neinn tíma til að vesenast í the guardian stones, og eftir því sem ég best veit er það eina leiðing til að stöðva storminn (og eldregnið).
Er til einhver önnur leið til að stöðva eldregnið?