Jáh góðan daginn, ég og vinur minn erum að klára menntaskólann núna í vor og erum búnir að vera að pæla í því að reyna að fá vinnu einhvernstaðar í Ölpunum og búa þá úti, vinna á skíðasvæðinu á veitingastað, hóteli eða svipað og vera eins mikið á bretti og hægt er! :D

Er einhver hér sem er með reynslu af svona eða veit um einhvern sem hefur farið út svona? Þá megiði endilega miðla af reynslu ykkar, þetta er mikill pakki og væri gott að heyra frá einhverjum sem hafa farið útí þetta :D