Ég bý í Vesturbænum og er að leita að góðum spottum til að skeita á. Ég var oftast fyrir utan hjá mér en svo voru gerðar reglur sem bönnuðu það. Svo var ég líka stundum á plani sem var alveg slétt, afar þægilegt en svo kom kona sem bjó þarna nálægt og sagði að planið væri fyrir ofan bílageymslu svo það bergmálaði sjúkt uppí húsin svo við þurftum að hætta:/

Svo ég er að leita að nýjum og eins og ég sagði áður ég bý í vesturbænum í RVK og nenni ekkert að fara einhvert lengst uppí kringlu r sum.

Og ekki segja Ingólfstorg, nenni engan vegin að vera með gaurunum þar því ég er 13 ára og nýbyrjuð, get ekki einusinni ollað (ókei, 1-2 sentimetra).

Vitiði um einhverja góða?
!!!