Gott kvöld á sýn næsta Laugardag 25 jan! Ég hafði skrifað grein um þetta áður en hún er bara horfin af skjánum og fynnst mér að svona þegar góðir bardagar eru á næsta leiti ætti að vera þráður um hann vikuna fyrir bardagann!

En Vernon Forrest(sá er sigraði Shanq Mosley í tvígang)35-0-26 WBC veltiviktar meistarinn mun berjast við Ricardo Mayorga almennt talinn næst besti 147 punda boxarinn í dag á eftir Forrest.
Mayorga er WBA meistarinn 24-3-1-22 rothögg er viltur boxari með mikla höggþyngd og vann han titilinn af Andrew Six Heads Lewis í sínum síðast bardaga og verður þetta mjög svo áhugaverður bardagi milli manna með mjög svo ólíka stíla!

En upphitunarbardaginn er ekkert síðri þar sem Joel Casamayor 28-1-18 fyrrverandi heimsmeistari 130 punda deildarinnar þangað til hann tapaði á eins nauman hátt á stigum og hægt er að tapa fyrir Acelina Frietas enda sýnir það sig að Freitas hefur ekkert viljað nefna að berjast við Casamayor aftur og er að berjast við ekki góða andstæðinga! En mótherji Casamayor verður Nate Campell 23-0-22 höggþungur og boxari sem gæti átt bjarta framtíð!
En útsending hefst kl 02:00 og mun ég reyna að birta meira um boxarana svo sem viðtöl ofl þegar nær dregur bardaganum en ég hvet alla sem vilja sjá virkilega góða hnefaleikara í góðum jöfnum bardögum að horfa á þessa útsendingu því ég held að enginn þessara bardaga verði neitt mismatch eins og svo oft vill gerast þessir menn eru allir að reyna fá bardaga við stærstu nöfnin og berjast samkvæmt því!