Jæja núna er ég að flytja og henda úr geymslunni til að minnka vinnuna. vitiði um einhvern stað sem gæti séð um að gefa fólki sem hefur lítið á milli handanna það sem mig langar ekki til að eiga? flest er þetta eitthvað punt, styttur og skartgripaskrín og fleira fínerí frá því að ég var barn en er búið að vera í kassa í einhver ár. þetta eru eigulegir munir fyrir litlar stelpur þó ég sé vaxin upp úr þeim. eins eitthvað af dóti og svoleiðis. hvert gæti ég mögulega losað mig við þetta? vil helst ekki fara bara með heilt fallegt dót út á hauga. en það gleður heldur ekki neinn i kassa uppi á háalofti hjá mér.

kv. Pooh