Hæhæ,

nú hef ég fengið frábært tækifæri!!! Ég á að mála olíumynd af aðalsöngvaranum í KK-KK sjálfan :) Þetta er svo gott tækifæri að fá að mála portrett af frægum manni, góðir möguleikar í framtíðinni ef annað þekkt fólk sér málverkið. Byrja á því á morgun inni í bílskúr :D
Það á að gefa út bók um söngvarann hann KK og þá verður mynd af málverkinu líklega sett í bókina. Pabbi minn og hann eru gíðir laxveiðifélagar og pabbi er að gefa honum málverk eftir mig þannig að í staðinn fá systkini mín tvö einka-gítarkennslu hjá honum :)þau eru byrjuð í kennslunni, en þau eru 22ja ára systir og 17 ára bróðir og þeim gengur mjög vel að æfa sig.