Ég og vinur minn vorum að veltast úr hlátri í gær af hálvitaskap. Við vorum að velta fyrir okkur að láta kunningja gera fyrir okkur nýjan Patch… þ.e. alveg eins nema með nýju secred borði!!!… nefnilega Secred Árna Johnsen level, þ.e. maður setur tome of town portal + einhvern stein í Horadric Cube og vola, það hlaðast upp portal úr óðalsteinum, og maður fer inn, þá birtist maður í höllinni hans Árna, og hann kastar spell ámann sem gerir mann soldið svona ölvaðann :), svo stelur hann af manni, ekki bara potionum heldur getur komið fyrir að hann ræni af manni vopnum og svoleiðis, en maður fær þetta náttúrulega aftur þegar maður drepur hann :), já svo kastar hann líka óðalsteinum og maður fær skaða ef hann byrjar að spila á gítarinn :), en það gengur náttúrulega ekki að hafa hann einan, það verða að vera einhverjir smáræflar með honum, þá var ég að spá í DV fréttamenn :) og eitt stikki ritstjóra sem raisear upp dv fréttamennina :).
En hvernig lýst fólki á?…. (mar var í heví steipustuði þegar mar var að hugsa þetta).

-grín-
Fighting for peace is like Fucking for virginity, just plain stupid