Ætlaði að taka nett session með alt char í dag. Kallinn er prestur á lvl 24. Byrjaði á að eyða 45 mín í að leita að party til að fara með í The Stockade. Fékk ágætis kalla í liði. Paladin og warlock á lvl 26, mage á lvl 28 og Rogue á lvl 30.

Það var nánast allt gert vitlaust sem hægt var að gera vitlaust… Rogueinn stelthaði inn í þvögu af 4 elite mobs og aggroaði alla. Mageinn byrjaði svo á að nota ekki polymorph og svo þurfti hann náttúrulega að spama Arcane explotion útum allt og fá 3 elite gaura á sig þannig að Hann = dauður.

En ok.. ég gerði heiðarlega tilraun til að bjarga mageinum (sem ég hefði ekki átt að gera).. kláraði manaið mitt á hann og fékk náttúrulega massíft magn af aggroi á mig ásamt því að mageinn dó. Svo dó ég (auljóslega.. með þrjá elite moba á mér og enginn að hugsa um að draga aggro af mér).. og svo dó restin.
Allt í lagi.. shit happends og ég var í góðum fíling til að skella mér aftur og kannski stratta smá áður, en þá fékk ég þetta fá einum..

Mage “Why didnt you ress me”
Warlock “I PUT SOULSTONE ON PRIEST”
Warlock “U STUPID???”

Hvað er málið???


Fólk gerir mistök.. langaði rosalega að segja þeim aðeins hvernig mér findist best að gera þetta (og hlusta á þau ef það væri eitthvað við mína spilun að athuga), en eftir þetta þá svaraði náttúrulega bara “bless” og fór, fkn 45 mín farnar í súginn í einhverja hauga grúppu.
og það versta er að þetta er ekki í fyrsta, og heldur ekki annað skiptið sem ég lendi í svona rugli… allavega með prestinum , menn virðast halda að það sé sjálfsagður hlutur að kenna prestinum um allt ef eitthvað klúðrast.


Ég man ekki alveg á hvaða lelveli ég var með mageinn minn þegar ég fór þangað fyrst (giska á lvl 26-27), en ég allavega kláraði allan instancinn með paladin og Warrior á sama leveli.. og ég er hand viss um að þessi grúppa sem ég fór með núna hafi verið betri levellega séð.

Óþolandi attitude gerir það að verkum að maður beinlínis nennir ekki að eyða meira en 1 mín í að finna sér party, því það eru hvort sem er litlar líkur á að maður nái að gera eitthvað af viti vegna leiðindar stæla og illa skipurlaða aðferða.. Það er nánast í annað hvert skipti sem maður lendir á svona plebbum sem gjörsamlega skemma alla skemmtun fyrir manni.

með aðal characternum mínum hef ég aðeins farið í instaces með fólki sem ég þekki.. mæli með að fólk sem er lenda í svona finna sér eitthvað almennilegt guild með gaurum á svipuði leveli. Í mínu guildi eru allir fyrir ofan alt charinn, því miður.

takk fyrir mig
- Einn virkilega pirraður prestur

ps. ef einhver íslendingur var að spila með mér, þá er ég ekkert sérstaklega fúll út í neinn nema Warlockinn.. sem er bara leiðindar dóni og ætti frekar að fara að spila lúdó við sjálfan sig..