Ég er Alliance, er samt búinn að missa netið svo oft eftir að ég fékk þennan leik að ég er búinn að missa tölu á því, að minnsta kosti 7 sinnum, þannig að ég er bara 28 Warlock sem heitir Meinfus og 21 Priest sem heitir Næturlæknir eða Adjacent. Skiptir auðvitað ekki máli þar sem að þú ert Horde.
En veistu hver Maladictus er? Ég er alltaf að heyra um hann, á að vera einhver svakalegur PvP Undead Priest snillingur. Réðst á Duskwood með einhverjum Warrior, sem missti varla líf þrátt fyrir að meira en 20 lvl 40+ verðir væru að lemja hann og lemja. Lamdi þá ekki einu sinni til baka, stoppaði bara til að drepa mig með tveimur höggum. :)