Ég veit ekki hvort að ég hafi skrifað Ghouls rétt en ég veit það að Dreadlord (hetjan hjá Undead) er alger snillingur þegar hann gengur í lið með þeim.

Já Dreadlord og ghouls gera 1 helvíti sterkt lið. Það sem ég geri er það að þegar ég fæ mér Dreadlord þá vel ég Vampyric Aura sem fyrsta skill og þá er sko gaman. Ég geri helling af ghouls (11 þannig að þeir og Dreadlord passi saman í hóp) uppgrade'a Canibalize og svo byrja ég að creepa. Allir kallar sem ég hitti slæ ég og bít með gouls og þeir fá lífið sitt jafnóðum til baka en svo þegar allir creeps eru dánir í einum hóp og ghouls eru ekki með fullt líf þá læt ég þá éta líkin.

Ég fór á Battle.net í Small Free For All og rústaði byrjuninni alveg tók heilan her samansettan af Grunts, Headhunters, Hetju og galdramönnum en þetta entist ekki lengi því að þegar allir voru daudir nema ég og 1 gaur þá rústaði hann mér með chimera en ég fór aldrei yfir no-upkeep ;)

Ég vildi bara benda á kost ghouls því að allir eru að hvetja mann til þess að gera abomination en ég vil frekar hafa marga, litla, hraða, snögga gaura sem geta svo étið líkin fyrir líf og kosta sama og ekkert. Maður er fljótur að gera þá og ef einhver deyr í hernum þá er maður fljótur að sækja annan :D


Vona að þið hafið eitthvað gang af þessu. -Cyrax-