Tölvan mín Það virðist enginn vera að fara að senda inn mynd af setupinu sínu eins og var talað um á korkunum fyrir langa löngu.

Hér fáið þið semsagt setupið mitt, ein borðtölva og ein fartölva.

Ég tek það fram að þetta er langt frá því að vera fullklárað. Breytingar sem ég á ef til vill eftir að gera:

Skipta út lyklaborðinu, losa mig við macro takkana og fá mér X-keys Pro lyklaborð.

Bæta við annarri tölvu. Bæti ég við annarri tölvu mun ég einnig bæta við tveim skjám.

Og svo langar mig í nýja mús. :(