Sælir!

Við stjórnendur Blizzards höfum ákveðið að skella upp myndakeppni. Hún byrjar núna og mun enda þegar okkur lýst á fjölda mynda sem komnar eru inn.

Reglurnar eru einfaldar, en þær hljóma svo:

*Myndir verða að tengjast einhverjum leik Blizzard
*Verður að vera mynd eftir ykkur
*Leyfilegt að breyta myndinni í hvaða forriti sem er (Photoshop, 3dMax, Paint o.fl)
*Má vera teiknuð mynd
*Taka skal fram í hvaða forriti myndinni var breytt
*Það væri ekki verra ef notendur gætu linkað í upprunalegu myndina (óbreytt)
*Hámark þrjár myndir, en aðeins ein verður talin til atkvæða.
*Ef myndin á að vera keppnishæf, þá skal hún bera viðskeytið “- Keppni”.

Allar myndir ótengdar keppninni verða settar í bið þar til keppninni lýkur.

Ef einhverjar spurningar vakna, póstið þeim þá hingað og þá munu stjórnendur (eða notendur) svara þér bráðlega.

Gangi ykkur vel!