Sælir, kæru Blizzard-leikja áhugamenn.

Ég ætla að byrja “Screenshot” keppni, sem mun standa til 20. október.

Reglurnar eru:

1. Myndin verður að vera úr Blizzard leik. (Warcraft serían, Diablo, StarCraft svo eitthvað sé nefnt)
2. Myndin má ekki vera yfir 1024x768 og Hugi höndlar hana ekki ef hún er mikið stærri en 1 megabyte.
3. Myndin á að vera eins og hún var þegar hún var tekin.
4. Tvær myndir á mann.

Hvet fólk til að senda myndir úr StarCraft og Diablo sérstaklega, þar sem mikið er um World of Warcraft myndir hérna.

Sendið þetta inn sem mynd, og hafið “- Keppni” sem viðskeyti.

Gangi ykkur vel.

Kveðja, Steini.