Bilar Colin McRae kemur hér inn til lendingar eftir risastökk á SS14 í Telstra Rally Australia sem fór fram nú um helgina. Því miður fyrir McRae og hinn nýja aðstoðarökumanns hans, Derek Ringer, þá þoldi kælikerfið í Ford Focusinum ekki þennan akstursmáta og urðu þeir félagar að hætta keppni nokkrum metrum seinna. Það eru bara tvær stillingar á bensíngjöfinni hjá þessum manni. Stopp eða botngjöf……