Bilar Hyundai kynnti nýja útgáfu af WRC bílnum sínum í gær, Hyundai Accent WRC3. Útlitslega séð eru breytingarnar ekki miklar, helst má þar nefna minniháttar breytingu á framenda með það í huga að bæta loftflæði. Stærsta breytingin liggur hinsvegar undir húddinu en þar er heldur betur búið að taka til hendinni en einnig er komið nýtt fjöðrunarkerfi, bremsukerfi og mælaborð. Verður athyglisvert að fylgjast með gengi Freddy Loix og félaga á Korsíka núna um helgina.