Bilar Honda NSX hefur í seinni tíð fallið í skuggann af Nissan Skyline og finnst mér á NSX hallað þar. Ég er ákaflega hrifinn af ál-ofurbíl Honda og hann er þess heiðurs aðnjótandi að vera á listanum mínum yfir þá bíla sem væru draumabílar ef Porsche 911 væri ekki til :)

Bílarnir á myndinni eru í uppáhalds litasamsetningunni minni fyrir NSX, koparlitir og auðvitað vill maður bíl með heilu þaki og það verður að vera svart!

P.S. Græna skrýmslið varð að fara!!!