Núna í hádeginu tek ég eftir því að einhver elskulegur samferðarmaður minn í umferðinni hefur skellt hurðinni utan í bílinn minn þar sem hann stendur út á stæði í vinnunni. Umræddur bíll er 85 árgerð af ramcharger og ætti þetta því ekki að vera mikið tiltökumál nema hvað að ég heilsprautaði bílinn fyrir ca 2 vikum!!!

Viðkomandi hefur greinilega verið á hvítum jeppa og skellt hurðinni af alefli í bílinn hjá mér því það eru nokkrar hvítar 15 cm langar og djúpar rispur í frambrettinu auk þess sem það lagðist inn um 2 cm á mjög stóru svæði.

Bílnum mínum var lagt lengst úti í horni fjarri öllum öðrum bílum og hefur viðkomandi því þurft að leggja sig allan fram um það að leggja svona nálægt mér.

DÓNASKAPUR AF VERSTU SORT!!!
Daðmundur hinn spaki