Ég eignaðist nýlega skemmtilegan amerískan jeppa, Dodge Ramcharger ´85 módel. Í bílnum er 318 mótor, litli mótorinn, og finnst mér hann ekki alveg vera að skila sínu. Mótorinn er gefinn upp 140 hross. Bíllinn er ekki ekinn nema 140. þús. km. og langar mig því að reyna að fríska aðeins upp á mótorinn fyrir ekki meira en 150 þús. kr.
Ég hef fengið allskynsábendingar s.s. annan blöndung aðra knastása, MSD kveikjukerfi og jafnvel túrbínu.

Hvað af þessu er raunhæft að gera fyrir tiltölulega lítinn pening.
(Taka ber fram að ég bý ekki yfir þeirri kunnáttu sem þarf til að geta sett hlutina í sjálfur.)

Allar ábendingar eru vel þegnar :)
Daðmundur hinn spaki