Föndurhornið bíður uppá ansi skemmtilegt project þessa vikuna og er alveg kjörið fyrir þá sem hafa langað að taka hring í rallíbíl :)

Eina sem menn þurfa að gera er að downloada þessu skjali
http://www.subaru-sti.co.jp/present/papercruft/index.html

Snúa sér að næsta litaprentara og prenta út og því næst er bara að grípa í skærin og byrja að klippa.

Eftir að samsetningu er lokið er svo um að gera að rýma stofugólfið og setja upp góða braut og láta gamminn geysa. Kjörin tveggjamanna skemmtun og þá getur annar leikið codriverinn og er mælt með að sá sem taki það hlutverk að sér kunni eitthvað fyrir sér í finnsku :)