Það var einhver hér um daginn að velta fyrir sér hvort Lödu umboðið væri hætt. Ekki veit ég beint hvort það hætti á tímabili en í dag sá ég að búið er að hengja Lödu skiltið uppá nýrri bílasölu inn á Dugguvogi og það stóðu nokkrar óskráðar Lödur þar fyrir utan þannig að Lödu aðdáendur geta varpað öndinni léttar ;)

Gat bara ekki verið að það væri alveg hætt því að það eru amk 20 nýjar Lödur niðrá tollsvæði í Sundahöfn.